Það er bara þannig!

Just another WordPress.com weblog

Jæja…byrjaður aftur að blogga

janúar 21, 2010 Posted by | Markaðurinn, Skemmtun, Stjórnmál, Umræðan, Uncategorized, Valla lífsstíll | Rita ummæli

21.júlí – Annar hvíldardagur

Sólbað og rólegheit í dag. Æfing í hádeginu á morgun.

júlí 21, 2009 Posted by | Uncategorized | Rita ummæli

Myndbönd Sullenbergers: Sterling Airlines og Glitnir

Fyrir þá sem ekki hafa séð þessi 2 myndbönd , þá mæli ég EINDREGIÐ með því að þið horfið á þau. í fyrra myndbandinu fer Sullenberger í gegnum sögu Sterling Airlines sem er (eða allavega var…veit ekki hvort það sé ennþá til). Svikamylla af VERSTU gerð er lýst þar og komið er upp um Palma Haraldsson sem algjörum siðlausum svikara sem enginn getur efast um að hann er eftir að maður horfir á þessi myndbönd.  Slóðirnar á þessi vídeó eru:

http://www.youtube.com/watch?v=9ejCZTYZPpQ (partur 1)

http://www.youtube.com/watch?v=TDqfGpYqpac (partur 2)

Ég var sjálfur mjög reiður eftir þessi myndbönd og hefði ekki verið leiðinlegt að stýra íslandi í dag með hann sem gest!! Myndi maður tæta hann í Q&A eða hvað!?

Síðara myndbandið er um Glitni og hvort í raun þetta hafi verið “stærsta bankarán sögunnar”. Þetta er ekki minna merkilegt myndband en Sterling. Slóðin er eftirfarandi:

http://www.youtube.com/watch?v=ffaLd1dkq2U&feature=related (partur 1)

http://www.youtube.com/watch?v=s8HUyy5qJzw&feature=related (partur 2)

Ég kem með meira efni fljótlega

nóvember 20, 2008 Posted by | Markaðurinn, Stjórnmál, Umræðan, Uncategorized | | Rita ummæli

RÚV og Skjár1

Það er kannski bara mér sem finnst það skrýtið að RÚV fái 3000 milljónir á ári í gjöf frá okkur skattborgurum, hefur engar takmarkanir á auglýsingamarkaði og er að keppa við hinar sjónvarpssstöðvarnar um erlent sjónvarpsefni…er þetta sanngjarnt??? Ég heyrði skemmtilega líkingu í útvarpinu í gær en þar var einhver sérfræðingur sem sagði að ef þetta væri 100 metra spretthlaup þá væri RÚV með 50 metra forskot…það er ÞAÐ erfitt fyrir Skjá1 og Stöð 2 að keppa við RÚV. Skjár 1 er búið að segja upp ÖLLU sínu starfsfólki og eru starfsmenn Skjás eins eðlilega svekktir enda er þetta frábær sjónvaprsstöð og ÓKEYPIS (hvað er margt ókeypis í dag???). ég hvet alla sem lesa þetta til að fara á www.skjarinn.is og skrá sig þar til að knýja stjórnvöld til að taka ákvörðun um að hér á landi eigi að ríkja eðlilegt samkeppnisumherfi, “…sambærilegt við það sem gerist á hinum Norðurlöndunum” eins og segir á heimasíðu Skjás eins.

Ég veit ekki með ykkur en ég vil ekki að svona frábært framtak eins og Skjár 1 var og er, líði undir lok í þessarri kreppu eins og svo margt annað. Þau okkar sem eru að horfa reglulega á Skjá, horfa á Jay Leno, House og alla þessa góðu þætti (þó svo að Survivor megi aaaaalveg fara að stoppa….frekar þreyttur þáttur en það er önnur umræða!), eiga bara að hundskast á www.skjarinn.is og skrá okkur….tekur enga stund og svona undiskriftarlistar geta skipt sköpum þegar farið er til ríkisstjórnarinnar og beðið um lagabreytingu varðandi samkeppni á klakanum.

Góða helgi og áfram ísland á laugardaginn

október 31, 2008 Posted by | Uncategorized | | Rita ummæli

“já en það er auðvelt að vera vitur eftirá”

HVERSU OFT þurfum við að heyra alla þessa svokallað spekinga, spekúlanta og fræðimenn segja að það sé auðvelt að vera vitur eftir á og að enginn hafi getað séð fyrir hvernig ástandið yrði í dag??? Í fyrsta lagi þá hefur komið fram í Kastljósi, Ísland í dag, Silfur Egils og þessum þáttum öllum að það var varað við þessu ástandi árið 2006 en enginn kaus að hlusta á þær viðvaranir. Af hverju að hafa fræðinga og spekúlanta ef það er ekki hlustað á þessi grey? Í öðru lagi þá finnst mér skrýtið að menn hafi ekki getað séð þetta að miklu leyti fyrir því svona ástand skapast ekki yfir nóttu þó við íslendingar kunnum að hafa upplifað það þannig. Þetta tekur langan tíma að byggjast upp og mér finnst ekkert ósanngjarnt að fræðimenn landsins eigi að geta lesið táknin, leggi saman tvo og tvo og geti spáð fyrir um hættuástand…en hvers virði er það svosem ef enginn hlustar! Þessi menn eru með dúndurlaun og þegar kemur svona ástand og þeir spurðir af hverju hafi ekki verið gripið í taumana fyrr þá er búið að koma í hverjum einasta fréttaskýringaþætti hingað til “já en það er auðvelt að vera vitur eftirá”. Ég er ekki með dúndurlaun enda bara saklaus íþróttakennari en ég get hins vegar verið vitur eftirá eins og þessir fræðimenn…..af hverju er ég ekki alveg eins settur á sömu laun og þessir  fræðingar, eða það sem væri betra/skemmtilegra að sjá, að þeir væru settir á íþróttakennaralaun! Þeir læra þessi fræði og eiga, eins og áður segir, að geta lesið táknin og lagt saman tvo og tvo til einmitt að geta gripið í taumana nógu snemma.

október 29, 2008 Posted by | Uncategorized | | Rita ummæli

   

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.