“En Valli…þetta ER bara svona”
Ég vil segja ykkur frá reynslu sem ég varð fyrir fyrir um það bil viku. Málið er að ég er með nett hnémeiðsli vegna íþróttaiðkunnar og var mér því ráðlagt að fara til bæklunarlæknis sem ég og gerði. Ég fæ tíma hjá ónafngreindum aðila í Orkuhúsinu. Þegar ég er búinn að sitja og lesa Mannlíf frá 1981 þar sem var gífurlega heillandi grein um gaur sem mér gæti ekki verið meira sama um….þá heyri ég að einhvern kallar upp “Ástvaldur??” og jú það er bæklunarlæknirinn.
Læknirinn býður góðan daginn og er mjög almennilegur í alla staði og biður mig að leggjast á bekkinn hjá sér. Ég geri það og bretti upp æfingarbuxurnar sem ég var í og hann tekur eitthvað utan um hnéð á mér og hróflar eitthvað við því og spyr “er þetta vont?”…”nei” segi ég, þá tekur hann um fótinn og snýr honum aðeins til hægri og spyr “en þetta….er þetta vont?”, “nei” segi ég og síðan snýr hann hnénu í hina áttina og spyr í þriðja sinn “er þetta vont??” og “nope!” segi ég. Þá biður hann mig um að fá mér sæti og hann segir (ekki orðrétt en í þessa líkingu). “Ég sé ekki hvað er að en þetta er líklega eitthvað í sambandi við liðþófa”, “farðu niður í röntgendeild og pantaðu tíma hjá þeim”. Þar með var þessu “sessioni” lokið….það tók um það bil 3-4 mínútur. Ég segi við dömuna að ég eigi að fara niður í röntgen en þá segir hún ” já ok…þetta verða 9.500 krónur” og án þess að hugsa þá borga ég eins og asni og segi ekki neitt en er samt með undrunarsvipinn þar sem ég hélt ég ætti bara að fara niður í röntgen því hann sjái jú ekki í gegnum hnéð á mér. Sem sagt…þessi bæklunarlæknir skoðar mig í um það bil 3 mínútur…..veit EKKERT hvað er að (því eins og ég segi…hann sér ekki í gegnum hnéð á mér)….vísar mér á aðra aðila sem GETA séð í gegnum hnéð á mér og séð rót vandans og fyrir þetta þá rukkar hann mig næstum því 10.000 krónur!! Nú spyr ég ykkur…ER ÞETTA HÆGT??? Ég er búinn að spyrja nokkra að þessu og flestir segja “já en Valli…þetta er bara svona” eða “já en hann er búinn að vera í námi lengi”. Í fyrsta lagi þá á þetta EKKi að vera þannig að þessi bæklunarlæknir taki næstum 10.000 krónur fyrir að gera ekki neitt! enginn á að fá borgað fyrir að gera ekki neitt…ég veit ég verð að vinna fyrir mínu kaupi og af hverju ætti hann ekki að þurfa að gera það líka? Varðandi “menntunarrökin” þá segi ég… hvað með það þó hann hafi verið lengi í námi??? Verða menn ekki að vinna fyrir laununum sínum eftir x mörg ár í námi? Ég myndi giska á að þessi læknir er búinn að vera í sirka 6-7 ár í námi til að vera bæklunarlæknirinn sem hann er í dag. Ég er með 5 ára háskólanám á bakinu sjálfur en mér myndi ALDREI detta það til hugar að rukka manneskju 9.500 kr. fyrir að gera ekki neitt í 3 mínútur!
Ég vonast til að opna æfingarsálfræðiþjónustu á næstu 6 mánuðum og ég get tekið ímyndað dæmi mínu máli til stuðnings. Segjum að karlmaður í kringum 36 ára komi til mín og segi “Valli…ég næ einfaldlega ekki að halda mig á æfingarprógrammi, ég virðist alltaf hætt eftir einhverjar 2-3 vikur…geturðu hjálpað mér?”. Ef ég myndi taka utan um höfuðið á honum, horfa á það, snúa því örlítið til hægri, svo til vinstri í um það bil mínútu og segja síðan “heyrðu….ég hef bara ekki HUGMYND um af hverju þetta gerist en spurðu Sigga hann er hérna á neðstu hæðinni, hann gæti haft einhverja hugmynd því ekki hef ég NEINA hugmynd!” og myndi rukka hann 9.500 krónur fyrir að vísa honum til einhvers sem hefur hugmynd…..er þetta eðlilegt?? Væri ekki réttara ef þessir bæklunarlæknar (og örugglega allir læknar…ekki bara bæklunarlæknar sem eru með þessa rugl verðskrá) væru með “grunngjald” upp á kannski 2.500 kr fyrir að vísa til annars þegar þeir hafa ekki hugmynd um hvað er að gerast?? Ég veit ekki með ykkur en ef ég væri með 2.500 fyrir 3 mín vinnu án þess að gefa nein svör…ég væri alveg sáttur við kaupið! Maður þarf ekki 6-7 ára nám til að geta ekki veitt nein svör og þess vegna eru þessi “menntunarrök” fáránleg, það eitt að hafa verið lengi í námi gerir það ekki að verkum að maður þarf ekki að inna af hendi einhverja þjónustu til að fá greitt. Ég á enn eftir að bera þetta undir þennan lækni og spyrja hann hvort honum finnist þetta vera réttlátt og/eða siðlegt að rukka þennan pening og vísa mér annað án neinna svara. Ég ætla líka að gera annað, ég ætla að spyrja hversu langan tíma maður eigi rétt á að fá fyrir þennan pening þegar maður kemur til hans (bæklunarlæknisins) því ég er handviss um að það eru engar 3 mínútur. Ef hann segir “ja það gæti verið 30-45 mín um það bil” þá ætla ég að sitja inni hjá honum í ALLAR 45 mínúturnar þó hann sé búinn að svara mér á fyrstu 3 mínútunum….því þetta á að vera minn tími ekki satt? Ég borgaði fullt gjald og því ætla ég að láta hann “vinna” fulla vinnu.
Þessi hugsunarháttur að þetta “sé bara svona” fyllir mig reiði og ég gæti komið með rök fyrir því að svona nonchalante hugsunarháttur sé ein af ástæðunum fyrir ástandinu í þjóðfélaginu og reiðinni í dag. Hafa ekki alþingismenn og pólitíkusar almennt verið að sóa almannafé í lúxus “vinnuferðir” og lúxusjeppa af öllu tagi…sumir upp á tugmilljónir?? Ef einhver hefði stoppað þetta bruðl og þessa græðgi með því að berja hnefanum í borðið og sagt “nei….þetta á EKKERT að vera svona!” í staðin fyrir að frétta af þessu eða vita af þessu og segja “æi…þetta er bara svona” og hrista hausinn og hlægja.
Eina ástæðan fyrir því að svona hefðir komast á, eins og að bæklunarlæknar og aðrir sérfræðingar geti rukkar svona fáránlegan pening (og á krepputímum sem þessum!) er einfaldlega vegna þess að þeir hafa komist upp með það….það er bara þannig! Ég legg til að þetta grunngjald sem ég minntist á áðan verði tekið í gagnið ef “þjónustan” er innan við 5 mínútur og/eða að læknirinn hefur ekki hugmynd um hvað er að og vísar á annan….það er sanngjarnt og það er heiðarlegt!
Where in the world is Osama Bin Laden?
Núna ætla ég að taka smá hvíld á að velta fyrir mér efnahagsástandinu af því mig langar að fjalla aðeins um mynd sem er að koma í bíó. Myndin heitir Where in the world is Osama Bin Laden og er gerð af sama gaur og færði okkur Supersize me! (Morgan Spurlock). Hérna er mín spurning…..ER HANN GEÐVEIKUR??????? Maður labbar ekki um klæddur kufli og með túrban, með einn eða tvo myndatökumenn og spyr alla í múslimaríkjunum (sem eru með ööööörfáa nutjobs by the way), hvar Osama er! Þetta hlýtur að vera einn sá heimskasti ef ekki sá allra heimskasti einstaklingur sem hefur verið uppi. Hvað hefði hann gert ef hann hefði fyrir heppni/óheppni rambað inn á svæði þar sem Osama var? Spurlock hlýtur að vita að Osama er óvinur bandarísku þjóðarinnar, hefur drepið þúsundir og vill alls alls alls ekki vera fundinn. Eru ekki ansi sterkar líkur á að Spurlock og þessar hræður með honum hefðu, ekki bara verið drepnir, heldur pyntaðir líka og síðan afhausaðir. Þetta hefði verið tekið upp á myndbandsupptökuvél (eins og Osama finnst gaman að leika sér með) og sent til fréttastofa sem viðvörun um hvernig fer fyrir mönnum sem gerast svo heimskir að leita að sér.
Síðan er líka annað til í dæminu……að ég hafi geeersamlega rangt fyrir mér, Spurlock er með eistu á stærð við fitness bolta og að, hefði hann hitt á Osama og þá hundruði þjálfuðu hermanna sem vernda hann, þá hefði Morgan kallinn bara sweet talkað sig út úr þessu og gefið þeim áritað eintak af Supersize me…..ef það friðar ekki Osama og hans menn hvað þá???
-
Sarpur
- janúar 2010 (1)
- ágúst 2009 (12)
- júlí 2009 (14)
- janúar 2009 (1)
- nóvember 2008 (2)
- október 2008 (4)
-
Flokkar
-
RSS
Entries RSS
Ummæli RSS