Það er bara þannig!

Just another WordPress.com weblog

Jæja…byrjaður aftur að blogga

janúar 21, 2010 Posted by | Markaðurinn, Skemmtun, Stjórnmál, Umræðan, Uncategorized, Valla lífsstíll | Rita ummæli

Myndbönd Sullenbergers: Sterling Airlines og Glitnir

Fyrir þá sem ekki hafa séð þessi 2 myndbönd , þá mæli ég EINDREGIÐ með því að þið horfið á þau. í fyrra myndbandinu fer Sullenberger í gegnum sögu Sterling Airlines sem er (eða allavega var…veit ekki hvort það sé ennþá til). Svikamylla af VERSTU gerð er lýst þar og komið er upp um Palma Haraldsson sem algjörum siðlausum svikara sem enginn getur efast um að hann er eftir að maður horfir á þessi myndbönd.  Slóðirnar á þessi vídeó eru:

http://www.youtube.com/watch?v=9ejCZTYZPpQ (partur 1)

http://www.youtube.com/watch?v=TDqfGpYqpac (partur 2)

Ég var sjálfur mjög reiður eftir þessi myndbönd og hefði ekki verið leiðinlegt að stýra íslandi í dag með hann sem gest!! Myndi maður tæta hann í Q&A eða hvað!?

Síðara myndbandið er um Glitni og hvort í raun þetta hafi verið “stærsta bankarán sögunnar”. Þetta er ekki minna merkilegt myndband en Sterling. Slóðin er eftirfarandi:

http://www.youtube.com/watch?v=ffaLd1dkq2U&feature=related (partur 1)

http://www.youtube.com/watch?v=s8HUyy5qJzw&feature=related (partur 2)

Ég kem með meira efni fljótlega

nóvember 20, 2008 Posted by | Markaðurinn, Stjórnmál, Umræðan, Uncategorized | | Rita ummæli

Hreinsun mannorðsins

  Ég veit ekki með ykkur þarna úti en ég skil ekki eitt…ef menn eins og Hannes Smárason, Björgólfur Thor, Jón Ásgeir og Eggert Magnússon tryðu því í alvöru að þeir bæru ekki sök á ástandinu í dag, eins og fjölmiðlar og almenningur virðist vera í trú um, og að þeir væru í ALVÖRU saklausir eða hafðir fyrir rangri sök…..af hverju panta þeir ekki eitt stykki viðtal í Kompás, Markaðnum eða Íslandi í dag?? Um leið og ég myndi heyra eitthvað svona sem myndi sverta mannorð mitt eins svakalega og þeirra hefur verið svert þá myndi ég umsvifalaust koma og gera allavega heiðarlega tilraun til að færa rök fyrir mínu máli og leiðrétta hugsanlegan misskilning í málinu. Björgólfur Thor sýndi mikið hugrekki að “þora” í viðtal í Kompás þar sem hann telur sig hafa nokkuð hreina samvisku (áhersla á “nokkuð”). Hann stóð sig nokkuð vel að mínu mati og komst ágætlega út úr þessu og sýndi, allavega mér, að hann og margir af þessum aðal gaurum í þessum máli, reyndu að koma í veg fyrir að þetta færi svona ílla. Núna ætlar Hannes Smárason að koma í viðtal í Markaðnum með Birni og það verður forvitnilegt að sjá það auðvitað en af hverju að bíða svona lengi með að hreinsa mannorðið? Það verður erfiðara og erfiðara að hreinsa mannorð manns, greina lygar frá sannleik o.s.frv. eftir því sem tímanum líður. Af hverju eru hinir gaurarnir ekki búnir að segja eitthvað eða koma fram líka? Það getur verið að þeir séu að taka “ég virði ekki svona rugl með svari” taktíkina eða “heyrðu…ég hef engin mótrök við þessum rökum!”…ég veit ekki. Eitt er víst að þeir verða allir að fara að láta heyra í sér svo einhverjir vilji fara í viðskipti við þá aftur. Erfitt hlýtur að vera að hreinsa það orðspor að maður sé glæpamaður og svikahrappur sem skilur eftir sig sviðna jörð hvar sem maður kemur. Ég vildi bara koma þessu á framfæri, það getur vel verið að ég sé sá eini sem hugsi svona ég veit það ekki….en ég væri búinn að koma fram og svara ásökunum ef rangar væru!

október 31, 2008 Posted by | Markaðurinn, Stjórnmál, Umræðan | | Rita ummæli

Kompás – Björgólfur og “ástandið”

Ég er ekki stjórnmálafræðingur, hagfræðingur eða viðskiptafræðingur þannig ég kem kannski að þessu máli sem alger áhugamaður en mér finnst auðkýfingar landsins vera að spila rosalega ílla úr þessu ástandi. Ekki bara eru flestir af þessum ríkustu mönnum landsins að benda eitthvað annað og firra sig ábyrgð í skjóli þess að þeir leyfðu sér einungis að ganga eins langt og lög gerðu ráð fyrir, heldur eru þeir engan veginn að hjálpa til við að laga ástandið þó að milljarðamæringar séu. Í síðasta Kompás þætti kom konungur útrásarvíkinganna (þó að honum sé ílla við að vera titlaður útrásarvíkingur og hvað þá konungur þeirra) og reyndi að sannfæra okkur um að hann væri í raun búinn að aðstoða þjóðarbúið með því að koma miklum viðskiptum inn í landið á undanförnum árum. Það er staðreynd að það er munurinn á honum og hinum “útrásarvíkingunum” að hann stofnaði sinn höfuðstól erlendis, hefur búið erlendis yfir hálfa sína ævi og hefur byggt sín fyrirtæki erlendis.

Björgólfur ræðir um hina margvíslegu “galla” í viðskiptamódelí Íslands, eins og þegar menn eru að “framleiða eigið fé” eins og hann orðar það, þá er hann að meina þegar einstaklingar selja hvor öðrum eignir inn í lokuðum hóp (eins konar hringrás) og segir hann að það sé í eðli sínu bull! Ok…..hérna er mín spurning…..fyrst þetta er bull af hverju hefur hann ekki bent á þetta fyrr???? maður spyr sig hvort hann hafi ekki sjálfur hagnast eitthvað á svona hringrás….ég veit ekki hvort hann gerði það en maður spyr sig. Björgólfur segir líka “þessi peningamálastefna á Íslandi hefur verið handónýt….skilað sér í allt of háum vöxtum, skilað sér í því að fólk fór sér langt fram úr efnum í neyslu með því að taka lán erlendis og hún hefur skilað sér að öll þjóðarframleiðslan var borguð út úr landi sem ávöxtun til einhverra ónefndra fjárfestingarsjóða út í heimi” hann segist hafa margvarað við þessu en enginn í Ríkisstjórninni né í Seðlabankanum hafi hlustað. í þessu Kompás viðtali segir Björgólfur einnig að þegar staðan var að verða krítísk og orðrómur var um að Seðlabankinn ætlaði að yfirtaka Glitnir og hafi hluthafar Landsbankans talað við hluthafa Glitnis og við Seðlabankann. Hver einasti aðili í Glitni, Landsbankanum og Kaupþing og Björgólfur sjálfur sjá það að með því að yfirtaka Glitni þá er Ríkið að yfirtaka skuldirnar  líka! (tekur sem sagt alla ábyrgð á sig) Allir eru þeir sammála um að þetta megi alls ekki gerast!! Núna kemur þetta undarlega sem ég vissi ekki og eflaust eru margir sem vita þetta ekki en þessir aðilar í bönkunum senda bréf þar sem úrræði eru listuð upp sem gera það að verkum að Seðlabanki þyrfti ekki að skuldbinda okkur þjóðina fyrir þessum skuldum öllum…..en það berst ekkert svar frá Seðlabankanum….ekki neitun eða neitt! Hvernig getur það verið að það sé bara sett á “the silent treatment”?? Maður spyr sig hvort Davíð Oddson hafi frá upphafi ætlað að yfirtaka bankann/bankana sama hvað einhverjir sérfræðingar út í bæ myndu segja, það lítur allavega þannig út þegar maður heyrir þetta. Þetta bréf með öllum tillögunum var sent á sunnudeginum rétt fyrir yfirtökuna, samkvæmt Björgólfi, en eins og áður segir þá fékkst ekkert svar við þessum tillögum. Aðal tillaga þesas bréfs var snilld en hún félst í því að allir bankarnir myndu sameinast undir einn hatt, safna öllu sínu fé og Ríkið myndi eignast ráðandi hlut…stærsta hlut í því batteríi. Þetta hefði ekki skuldsett okkur íslendinga eins og staðan er í dag og þessi ábyrgð hefði ekki legið á þjóðinni. Af hverju tók Seðlabankinn þessar tillögur ekki alvarlega?? Af hverju svarar Davíð Oddson ekki þessu og reynir að firra okkur skattborgara ábyrgðinni? Það er augljóst í mínum huga að Davíð Oddsyni er skítsama um hvað einhverjir sérfræðingar eru að kvabba út í bæ og reyna að segja honum hvað er gáfulegast að gera….hann VEIT hvað er okkur fyrir bestu hann Davíð! Orðið mikilmennskubrjálæði kemur óneitanlega upp í hugann núna þegar nafn Davíðs er nefnt. Hann hefur gert ótal mörg mistök undanfarið og ENN situr hann sem seðlabankastjóri….ég held að það megi fullyrða að í hvaða öðru landi sem er þá væri seðlabankastjóri annað hvort búinn að víkja (hefði hann snefil af heiðri) eða hann rekinn til að endurvekja traust á Seðlabanka íslands svo hægt sé að fá lán á betri kjörum (allavega lán yfirhöfuð!). Það þýðir ekki að vera með mann sem klúðrar GERSAMLEGA málum, nýtir ekki tækifæri til að safna í gjaldeyrisvarasjóð landsins, neitar að hlusta og svara þegar sérfræðingar í þessum málum eru að leggja til hvernig hægt sé að firra þjóðina ábyrgð, og telur sjálfan sig yfir alla hafinn í landinu….svona maður á ekki að vera með NEIN völd….hvað þá svona gríðarlega mikil völd.

Björgólfur segir að ástandið sem skapaðist við þessa yfirtöku Seðlabankans á Glitni hafi hrundið af stað hræðilegri atburðarás sem var FYRIRSÉÐ! Þ.e.a.s menn vöruðu við þessu ástandi strax á árinu 2006! En svo ég víki mér aftur að þessu tillögublaði sem ég minntist á áðan, þá fékkst ekkert svar og engin umræða um neinar af þessum tillögum…ekkert. Það leikur sterkur grunur á því, þegar maður lítur á þetta eftir á, að Davíð hefur planað þetta í langan tíma og vísvitandi hunsað alla viðeigandi aðila í þessu máli þannig það er spurning hver á mestu sökina á ástandinu eins og það horfir við í dag, “útrásarvíkingarnir” eða Davíð Oddson sjálfur. Vissulega gengu víkingarnir langt en það er kannski rétt að þeir hafi bara notað þann taum sem þeim var fenginn, þeir misnotuðu ekki vald eða hunsuðu gáfulegar tillögur.

Ábending mín er því sú að áður en við förum að krossfesta Björgólf og þessa víkinga sem hafa staðið fyrir útrásinni þá skulum við spyrja okkur hvernig ástandið væri í dag hefði verið hlustað á þessar tillögur þeirra á ögurstundu…þegar við íslendingar skulduðum ekki trilljón eða eitthvað álíka. Bankarnir hefðu sameinast, þeir safnað saman sínu fé og hefðu að öllum líkindum getað reddað okkur út úr þessarri krísu og við ekki í neinni ábyrgð. Það hefði leyst vandann….svo er það annað mál hverjum á að refsa eða sakfella fyrir að hafa komið okkur í þá stöðu að við þurftum að treysta á dómgreind manns með mikilmennskubrjálæðis.

Eitt í lokin…ef einhver af þessum gazzilljónamæringum er að lesa þetta. Núna þegar ástandið er orðið svona og ísland er í þessarri krísu þá ættuð þið að reyna að bæta mannorð ykkar því það er í molum í dag! Hérna er mín hugmynd:

Hver af ykkur 30 manns sem berið mestu ábyrgðina á þessu veseni (nú er ég að vitna í 30 manna lista sem var birtur í Kompás fyrir viku síðan að mig minnir) gætuð borgað 1/5 af ykkar fé til að hjálpa til. Ég lofa ykkur því að þið vinnið ykkur inn það “tap” sem er eiginlega ekki tap heldur fjárfesting í að hreinsa, ekki bara bæta mannorð ykkar, heldur líka samvisku. Maður sem á 500 milljarða myndi þá leggja í sjóðinn 100 milljarða…HANN Á ENN EFTIR 400 MILLJARÐA!!! og ég sver það við gröf móður minnar að það er hægt að lifa á þeim pening. Ef allir þessi 30 myndu hjálpa svona til þá myndum við þurfa að taka MIKIÐ minna lán eða jafnvel sleppt því að taka erlent lán (allavega fyrir þessum skuldum). Þannig mynduð þið endurvekja traust ykkar sem viðskiptamenn, bæði hérlendis sem erlendis og sannfæra okkur almenninginn að þið hafið einhverja sál en séuð ekki bara peningahungraðar vélar sem lifa fyrir það eitt að stækka bankareikninginn ykkar. Það myndi auka viðskipti ykkar til langs tíma að hjálpa okkur svona,það yrði ef til vill skrifað um þetta í siðfræðibókum viðskiptafræðinnar í framtíðinni. Málið er að þegar þið eigið 300-600 milljarða króna þá er SVOOOOOO auðvelt að hjálpa til! Það eru fáir íslendingar í þeirri aðstöðu sem þið eruð í, að geta hjálpað heilli þjóð á einu bretti (hvort sem þið áttuð sök á ástandinu sjálfu eða ekki). Gerið það sem er rétt í þessu máli, gerið það sem fyrst og hættið að benda á aðra í þessu máli, það er kominn tími til að sýna úr hverju þið eruð gerðir.

október 28, 2008 Posted by | Markaðurinn, Stjórnmál, Umræðan | | Rita ummæli

   

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.